Kvikmyndafókus Norræna hússins á Þjóðhátíðardegi Sama
Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, IcelandÍ ár hefur Norræna húsið í samstarfi við International Sámi Film Institute valið kvikmyndir eftir leikstjóra frá frumbyggjaþjóðum í Sámpi og í Canada. Kvikmyndirnar verða allar sýndar í sal Norræna hússins á þjóðhátíðardegi Sama 6. febrúar. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Norræna hússins.