Listasafn Íslands efnir til málþings í tilefni af sýningunni Sviðsett augnablik. Málþingið verður haldið í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg 7, laugardaginn 26. mars. Meðal fyrirlesara er Sigrún Alba Sigurðardóttir með áhugavert erindi sem að ber titilinn:

Að draga andann. Ljóðræn frásögn í íslenskri og norrænni samtímaljósmyndun

Aðgangseyrir að safninu gildir, ókeypis fyrir meðlimi Selmuklúbbsins.

 

Öll dagskrá

11:00
Sviðsett augnablik
Vigdís Rún Jónsdóttir, sýningarstjóri 

11:30
Ljósmyndin í samtímalistinni
Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari

12:00
Að draga andann. Ljóðræn frásögn í íslenskri og norrænni samtímaljósmyndun.
Sigrún Alba Sigurðardóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður og sýningarstjóri

12:30
Dauðadjúpar sprungur
Hallgerður Hallgrímsdóttir, myndlistamaður

13:00
Málþingi lokið

Fundarstjóri: Ragnheiður Vignisdóttir , Listasafn Íslands.

Hér má sjá nánari upplýsingar um sýninguna:
https://www.listasafn.is/syningar/svidsett-augnablik-staged-moments