Afmælishátíð

Norræna félagið Óðinsgata 7, Reykjavík, Iceland

Norræna félagið fagnar 100 ára afmæli á árinu

Þjóðhátíðardagur Sama

Samar halda upp á þjóðhátíðardag sinn 6. febrúar. Samar búa á nyrstu svæðum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Talið er að Samar séu um 80 þúsund, flestir í Noregi þar sem talið er að þeir séu á sjötta tug þúsunda. Samar njóta nokkurrar sjálfstjórnar og hafa eigin viðurkennd þing í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

Kvikmyndafókus Norræna hússins á Þjóðhátíðardegi Sama

Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, Iceland

Í ár hefur Norræna húsið í samstarfi við International Sámi Film Institute valið kvikmyndir eftir leikstjóra frá frumbyggjaþjóðum í Sámpi og í Canada. Kvikmyndirnar verða allar sýndar í sal Norræna hússins á þjóðhátíðardegi Sama 6. febrúar. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Norræna hússins.

Even a worm will turn

Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, Iceland

Ný myndlistarsýning EVEN A WORM WILL TURN opnar í Hvelfingu Norræna hússins. Birtingarmyndir eiginlegs og ímyndaðs sambands dýra og manna er skoðað í samhengi við þær menningarlegu hugmyndir, tilfinningar og merkingu sem mannfólkið varpar á félaga okkar í dýríkinu. Ímyndunarafli mannskepnunnar virðast engar skorður settar þegar hlutgerving, manngerving og guðgerving mismunandi lífvera er annars vegar.… Continue reading Even a worm will turn

Samnorræn ljósmyndasýning

Harpa Austurbakki 2, Reykjavík, Iceland

Samnorræn ljósmyndasýning með verðlaunamyndum frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Forseti Íslands mun opna sýninguna við hátíðlega athöfn kl. 16:30 þann 18.febrúar á jarðhæð í Hörpu. Við sama tilefni verða veitt verðlaun fyrir íslensku myndirnar, stigahæsta mynd í hverjum flokki og aukaverðlaun fyrir hæstu mynd sýningar. Allir velkomnir. Sýningin stendur til 3. mars. Opnun… Continue reading Samnorræn ljósmyndasýning

Kvartett Sigurðar Flosasonar og Hans Olding

Skuggabaldur Pósthússtræti 9, Reykjavík, Iceland

Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og sænski gítarleikarinn Hans Olding hafa starfað talsvert saman undanfarin ár. Þeir gáfu meðal annars út plötuna „Prjeto Barsil!“ árið 2015 en hún inniheldur útsetningar þeirra af brasilískri tónlist. Á Skuggabaldri munu þeir leika eigin tónsmíðar í bland við valda standarda. Þorgrímur Jónsson leikur á bassa og Erik Qvick á trommur. Facebooksíða… Continue reading Kvartett Sigurðar Flosasonar og Hans Olding

NOR tríó á Skuggabaldri

Skuggabaldur Pósthússtræti 9, Reykjavík, Iceland

NOR tríó leikur á Skuggabaldri 11. mars 2022 Richard Andersson NOR er jazztríó sem hefur verið starfandi síðan 2013. Auk Richards, sem leikur á kontrabassa, eru þeir Óskar Guðjónsson á saxófón og Matthías Hemstock á trommur. Tríóið hefur gefið út tvær plötur og leikið á fjölda tónleika í Danmörku og á Íslandi. Tónlist NOR einkennist… Continue reading NOR tríó á Skuggabaldri

NOR tríó + special guest Hilmar Jensson á Skuggabaldri

Skuggabaldur Pósthússtræti 9, Reykjavík, Iceland

Laugardaginn 12. mars fær jazztríóið NOR gítarleikarann Hilmar Jensson til liðs við sig og dagskráin verður blanda af tónsmíðum hans og efniskrá NOR. Richard Andersson NOR er jazztríó sem hefur verið starfandi síðan 2013. Auk Richards, sem leikur á kontrabassa, eru þeir Óskar Guðjónsson á saxófón og Matthías Hemstock á trommur. Tríóið hefur gefið út… Continue reading NOR tríó + special guest Hilmar Jensson á Skuggabaldri

Arnold Ludvig Quintet á Skuggabaldri

Skuggabaldur Pósthússtræti 9, Reykjavík, Iceland

Arnold Ludvig Quintet spilar norrænan jazz á Skuggabaldri. Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/3sE7I1XXG The music is Nordic jazz with a wide variety of jazz related stylistic tendencies such as latin, funk, blues ,folkloric music, including a new approach with high-level interplay and lots of room for improvisation. The quintet has performed over 20 concerts including… Continue reading Arnold Ludvig Quintet á Skuggabaldri

Sögustund á finnsku

Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, Iceland

Finnsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Við lesum og leikum okkur á finnsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja finnsku eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur finnskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða kíkja í… Continue reading Sögustund á finnsku

Forspil að framtíð – hljómfögur sögustund fyrir alla fjölskylduna

Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, Iceland

Falleg, skemmtileg og spennandi sýning fyrir alla fjölskylduna og þá helst meðlimi á bilinu 4 – 8 ára. Forspil að framtíð, eftir Ævar Þór Benediktsson og Kjartan Ólafsson, er blanda af sögustund og leiksýningu þar sem ævintýri af Norðurlöndunum eru sett á svið. Með aðstoð gervigreindarinnar CALMUS verður til hljóðheimur sem á engan sinn líka,… Continue reading Forspil að framtíð – hljómfögur sögustund fyrir alla fjölskylduna

Sögustund á sænsku

Norræna húsið Sæmundargata 11, 102 Reykjavík, Iceland

Sænsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Við lesum saman og leikum okkur á sænsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja sænsk eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur sænskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða kíkja… Continue reading Sögustund á sænsku