Våffeldagen í Svíþjóð
Það er vissulega öllum frjálst að borða vöfflur með rjóma allan ársins hring, en í dag hylla Svíar þetta vinsæla sætabrauð sérstaklega og halda Vöffludaginn hátíðlegan. Hvernig er svo þessum gómsæta tyllidegi fagnað? Jú, einfaldlega með því að baka og borða vöfflur. Ljósmynd: Moa Karlberg/imagebank.sweden.se