Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Kynning á styrkjamöguleikum: Nordplus Ísland

9.nóvember 2022 @ 17:00 - 19:00

Langar þig að sækja um styrk í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar?

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2023 og því býður Rannís – Rannsóknamiðstöð Íslands sem sér um Nordplus á Íslandi í samstarfi við Norræna húsið til kynningafundar miðvikudaginn þann 9. nóvember.

Kynningin verður haldin kl. 17:00-19:00 og kynnt verða öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.

Viðburðurinn er opinn öllum en þið megið skrá ykkur hér.

Dagskrá:

17:00 – Kynning á Nordplus og undiráætlunum

17:30 – Opið fyrir spurningar, spjall og ráðgjöf – starfsfólk Rannís svarar spurningum

18:15 – Mikael Lind og Joanna Sjunnesson flytja fallega tóna

18:35 – Spjall og léttar veitingar

Verið velkomin!

Nordplus er norræn menntaáætlun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og veitir styrki á sviði menntamála til aðila á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Details

Date:
9.nóvember 2022
Time:
17:00 - 19:00
Event Categories:
, ,
Website:
https://nordichouse.is/vidburdur/kynning-a-styrkjaraaetlunum-nordplus-island/

Organizer

Norræna húsið
View Organizer Website

Venue

Norræna húsið
Sæmundargata 11
102 Reykjavík, Iceland
+ Google Map
View Venue Website