Grundlovsdag í Danmörku
Í dag er þjóðhátíðardagur Dana, Grundlovsdag, kenndur er við fyrstu dönsku stjórnarskrána sem var samþykkt árið 1849. Danir fagna lýðræðinu á ýmsan hátt, gjarnan með kröfugöngum, hópsamkomum og auðvitað hópsöng.
Í dag er þjóðhátíðardagur Dana, Grundlovsdag, kenndur er við fyrstu dönsku stjórnarskrána sem var samþykkt árið 1849. Danir fagna lýðræðinu á ýmsan hátt, gjarnan með kröfugöngum, hópsamkomum og auðvitað hópsöng.
Í dag er þjóðhátíðardagur Svíþjóðar eða dagur sænska fánans, svenska flaggens dag, eins og dagurinn var kallaður hér áður fyrr. Það var á þessum degi árið 1523 sem Gustav Vasa var kjörinn konungur landsins og Svíþjóð sleit sig frá Noregi og Danmörku og lýsti yfir sjálfstæði. Þjóðhátíðardeginum er fagnað með fjöldasamkomum víðs vegar um landið… Continue reading Þjóðhátíðardagur Svíþjóðar
Í dag er þjóðhátíðardagur Álandseyja. Eyjaklasinn, sem telur 6.757 eyjar milli Svíðþjóðar og Finnlands, er hluti af lýðveldinu Finnlandi. Íbúar eru um 30.000 og sænska er opinbert tungumál. Álandseyjar hafa eigið þing og urðu sjálfstjórnarsvæði þennan dag árið 1922. Mynd: Eivind Sætre/norden.org
Samkvæmt goðsögninni féll fáni Danmerkur, Dannebrog, af himnum ofan þennan dag árið 1219. Fáninn féll þar sem Valdimar Danakonungur hrósaði sigri eftir orustuna við Lyndanisse í Eistlandi. Af Christian August Lorentzen Statens Museum for Kunst
Í dag er þjóðhátíðardagur Íslendinga og fæðingardagur Jóns Sigurðssonar forseta, en dagurinn var valinn til að heiðra framlag hans við baráttu Íslendinga fyrir sjálfstæði frá Danmörku. Lýðveldið Ísland var stofnað á Þingvöllum þennan dag árið 1944.
Í dag er þjóðhátíðardagur Grænlands, Ullortuneq (lengsti dagur ársins). Í höfuðstaðnum Nuuk er grænlenski þjóðfáninn dreginn að húni og bæjarbúar ganga saman í átt að höfninni. Um landið allt er dagsbirtunni fagnað eftir langan vetur, með samveru, ræðuhöldum, tónlist, söng og dansi. Ljósmynd: Aningaaq R Carlsen - Visit Greenland
Áður fyrr voru kynt bál á Sankt Hans kvöldi til að verjast illum öndum, sem talið var að léku lausum hala á Jónsmessunótt. Í dag snýst Sankt Hans aðallega um samveru, og þá sameinast fólk í kringum stórar brennur og lítil bál um landið allt, syngur, grillar og skemmtir sér fram á bjarta sumarnótt. Börn… Continue reading Sankt Hans í Danmörku