Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Gróðursetning – Norrænn afmælis- og vinalundur

16.ágúst 2022 @ 16:30 - 17:00

Verið hjartanlega velkomin í gróðursetningu á trjám fyrir norrænan afmælis- og vinabæjarlund í Fossvogi (Kópavogsmegin, á móts við Fossvogsskóla í Reykjavík).

Þriðjudaginn 16. ágúst nk. kl. 16:30 er ætlunin að ljúka við gróðursetningu í lundinn, en verkið hófst 31. maí síðastliðinn þegar félagsmenn mættu og gróðursettu fyrstu trén.

Nú köllum við á félaga að mæta á ný og leggja hönd á plóg við að ljúka þessu skemmtilega verki. Allir er velkomnir en við biðjum þátttakendur að mæta með eigin skóflur.

Sjáumst öll!

Í tilefni af 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi standa höfuðborgardeild og afmælisnefnd félagsins fyrir gróðursetningu á trjám í norrænan afmælis- og vinabæjarlund.

Kópavogsbær hefur úthlutað um 400 m2 svæði fyrir þennan lund. Lundurinn verður á móts við Fossvogsskóla við enda Álfatúns í Kópavogi.

Áformað er að tengja lundinn fræðslu um Norðurlönd.

Details

Date:
16.ágúst 2022
Time:
16:30 - 17:00
Event Categories:
, , ,
Website:
https://fb.me/e/2b1ce5ZPq

Organizer

Norræna félagið

Venue

Fossvogur
Iceland + Google Map