Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Fia – The Trilogy Tour

4.október 2023 @ 20:30 - 22:00

Fia er andlega þenkjandi söngvaskáld frá Svíþjóð sem með hrífandi og áhrifamiklum textum sínum og grípandi laglínum heillar alla sem á hana hlusta. Fia hefur einstakt lag á að flétta saman tónlist sem gerir hlustandanum kleift að kafa dýpra inn á við og finna sinn innri kraft. Fia og hennar tónlist eru orðin að hreyfingu út af fyrir sig og er hún í dag með um 150.000 mánaðarlega hlustendur á Spotify. Fia leggur mikið upp úr því að halda nánu sambandi við fylgjendur á sínum samfélagsmiðlum og þetta samband skín í gegn á tónleikum hennar.

Þetta er í fyrsta sinn sem Fia kemur fram á Íslandi og það er með mikilli gleði sem hún býður okkur velkomin inn á sitt dulræna og magnaða svið sem er helgað því að minna á töfrana sem búa innra með okkur.

Frá útgáfu fyrstu plötunnar „Made of Stars“ (2016) hefur Fia verið á tónleikaferðalagi um allan heim og snertir hún hjörtu fólks hvert sem hún fer. Í kjölfar útgáfu á plötunum „Legacy of Light” (2017) og „Waterfall of Wisdom” (2019) hefur Fia haslað sér völl meðal fremstu radda andlegu tónlistarsenunnar. Síðustu ár hefur Fia gefið út nokkrar EP-plötur, smáskífur og unnið í samstarfi við aðra listamenn.

Það er með tilhlökkun og þakklæti í hjarta sem við bjóðum Fiu velkomna til Íslands!

Details

Date:
4.október 2023
Time:
20:30 - 22:00
Event Category:

Organizer

Harpa
View Organizer Website

Venue

Harpa
Austurbakki 2
Reykjavík, Iceland
+ Google Map
View Venue Website