- This event has passed.
Af Íslendingum í Kaupmannahöfn á átjándu öld – Málþing
25.mars 2023 @ 13:30 - 16:30
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing undir yfirskriftinni Af Íslendingum í Kaupmannahöfn á átjándu öld í Þjóðarbókhlöðu, fyrirlestrasal á 2. hæð, laugardaginn 25. mars 2023.
Málþingið hefst kl. 13:30 og því lýkur eigi síðar en kl. 16:15.
Flutt verða fjögur erindi sem hér segir:
Hið íslenska lærdómslistafélag í Kaupmannahöfn
Margrét Gunnarsdóttir, sagnfræðingur og skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands
Hlutur Íslendinga í þjóðernismyndun Dana
Auður Hauksdóttir, prófessor emeritus í dönsku við Háskóla Íslands
Kaffihlé
Jón Eiríksson, íslenskur landsfaðir á átjándu öld
Hrafn Sveinbjarnarson, sagnfræðingur og héraðsskjalavörður
Um fræðastörf Jóns Ólafssonar úr Grunnavík í Kaupmannahöfn
Guðrún Ása Grímsdóttir, rannsóknarprófessor emeritus við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Fundarstjóri: Marín Árnadóttir, sagnfræðingur og sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns – Háskólabókasafns
Flutningur hvers erindis tekur um 20 mínútur.
Um 10 mínútur gefast til fyrirspurna og umræðna að loknu hverju erindi. Kaffiveitingar í boði félagsins. Útdrættir úr erindum liggja frammi á málþinginu. Þeir verða síðar aðgengilegir á heimasíðu félagsins.