Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sögur af norrænu samstarfi á RÁS 1

17.október 2022 @ 12:00 - 28.október 2022 @ 12:00

Uppástand er þáttur á RÁS 1 þar sem fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni. Uppástand er þessa dagana sent út í samvinnu við Norræna félagið, sem hélt upp á 100 ára afmæli sitt nú í haust. Um er að ræða tíu 5 mínútna þætti sem verða á dagskrá kl. 12:03 alla virka daga 17. – 28. október.

Dagskrá:

17. október – 100 ára afmæli Norræna félagsins
Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins.

18. október – Samstarf Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafnsins og Norræna félagsins
Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóðhátta við Þjóðminjasafn Íslands.

19. október – Konungar Íslands
Kristján Sveinsson, sagnfræðingur.

20. október – Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar
Ástrós Signýjardóttir, verkefnastjóri Info Norden.

21. október – Samvinna norrænu þjóðþinganna
Helgi Þorsteinsson, stjórnarmaður í Norræna félaginu.

24. október – Umhverfissamstarf
Tryggvi Felixsson, auðlindahagfræðingur og fyrrum starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs.

25. október – Norræn samvinna á sviði menningarmála
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, þjóðfræðingur og formaður Höfuðborgardeildar Norræna félagsins á Íslandi.

26. október – Ungt fólk og Norðurlöndin
Hannes Björn Hafsteinsson, verkefnastjóri Nordjobb hjá Norræna félaginu.

27. október – Tækifæri í norrænni samvinnu
Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdarstjóri Norræna félagsins.

28. október – Skiptinám á Norðurlöndum
Pála Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri hjá Norræna félaginu.

Details

Start:
17.október 2022 @ 12:00
End:
28.október 2022 @ 12:00
Event Category:
Website:
https://www.ruv.is/utvarp/spila/uppastand/33185

Organizer

Norræna félagið

Venue

RÁS 1
View Venue Website