- This event has passed.
The First 1000 Days in the Nordic Countries: Supporting a Healthy Start in Life
27.júní 2022 @ 08:30 - 17:00
Þessi norræna ráðstefna er lokaviðburður þriggja ára samstarfsverkefnis Íslands, Noregs, Finnlands, Danmerkur og Svíþjóðar, sem var formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni árið 2019. Verkefnið snýr að geðheilsu og vellíðan á fyrstu æviárum barna og beinist að því að skoða hvernig Norðurlöndin hlúa að börnum og foreldrum þeirra á þessu mikilvæga æviskeiði.
Birtar hafa verið þrjár skýrslur með niðurstöðum verkefnisins sem finna má á vefsíðu ráðstefnunnar: http://www.first1000days.is.
Ráðstefnan verður haldin í Hörpu þann 27. júní nk. og verður hægt að taka þátt bæði á staðnum og á netinu. Fyrir hádegi verður opnunarávarp ráðherra, kynning á niðurstöðum verkefnisins og fyrirlestrar fræðimanna á þessu sviði. Eftir hádegi verða vinnustofur á helstu áherslusviðum verkefnisins:
1) Vellíðan á meðgöngu og eftir fæðingu.
2) Jákvæð tengsl foreldra og barna.
3) Áhættuþættir á fyrstu æviárunum.
4) Vellíðan yngstu barnanna í leikskólum og dagvistun.
Ráðstefnan er öllum opin og þátttakendum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig á: https://first1000days.is/registration.