![Loading Events](https://norden100.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
Reykholtshátíð 2022 – Sönglög og Strauss
22.júlí 2022 - 24.júlí 2022
![](https://norden100.is/wp-content/uploads/2022/07/13668759_606288249531086_7293193453922203812_o.jpg)
Þessir tónleikar Reykholtshátíðar eru sérstaklega fjölbreyttir. Efnisskráin skartar hinum yndisfagra flautukvartett í A-dúr eftir Mozart auk þess sem Miller-Porfiris dúóið flytur stutt verk eftir sænska samtímatónskáldið Paula af Malmborg Ward. Oddur Arnþór Jónsson barítónsöngvari verður í stóru hlutverki og flytur sönglög eftir tvo máttarstólpa íslensku tónlistarhefðarinnar, þau Jórunni Viðar og Jón Leifs. Tónleikunum lýkur svo á einþáttungi fyrir strengjasextett úr óperunni “Capriccio”eftir Richard Strauss.
Nánari upplýsingar á www.reykholtshatid.is