Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Lisa Ekdahl í Hörpu

6.júní 2022 @ 20:00 - 22:30

Lisa Ekdahl heldur sannkallaða stórtónleika í Eldborg, Hörpu þann 6. júní í sumar. Veturinn 1994 varð Lisa Ekdahl að stórstjörnuna nánast á einni nóttu á Norðurlöndunum með fyrstu plötu sinni, sem hét einfaldlega Lisa Ekdahl, Platan sló í gegn og seldist gríðarlega vel. Platan, fékk fjöldann allan af tónlistarverðlaunum í Svíþjóð eins og til dæmis, besti kvenkyns popp- og rokktónlistarmaðurinn, listamaður ársins og svo auðvitað besta plata ársins. Afslappaður stíll hennar hefur heillað aðdáendur jafnt og gagnrýnendur. Og þessi skemmtilega blanda af sænskri vísnahefð, djassi og bossanova hefur gert Lisu að einum þekktasta tónlistarmanni Norðurlanda. 19 ára gömul kom Lisa Ekdahl fram á litlum djassklúbbum með sænsku djasshljómsveitinni “Peter Nordahl tríói”. Lisa hefur stundum talað um þessi ár, spilandi á litlum klúbbum, sem sína tónlistarkennslu. Í október á síðasta ári gaf Lisa út nýjustu plötuna sína GRAND SONGS þar sem hún túlkar af sinni alkunnu snilld nokkur uppáhaldslög sín eftir listamenn á borð við Beyonce, Carole King, Diana Ross og Bob Dylan.

Verð: 5.990 – 10.990 kr – Kaupa miða hér.

Salur: Eldborg

Lisa Ekdahl (harpa.is)

Details

Date:
6.júní 2022
Time:
20:00 - 22:30
Event Categories:
,
Website:
https://www.harpa.is/lisa-ekdahl

Venue

Harpa
Austurbakki 2
Reykjavík, Iceland
+ Google Map
View Venue Website