- This event has passed.
Gideonson og Londré: Gjörningurinn Arch
26.janúar 2023 @ 20:00 - 21:00
Listamannadúóið Gideonsson/Londré með gjörninginn Arch í Hafnarhúsi á sýningunni Иorður og niður.
Arch er hreyfing sem nær alla leið frá Portland til Reykjavíkur og Umeå.
Gjörningurinn byggir á sameignlegri reynslu fólks sem deilir upplifun sinni um atburði sem hafa mótað líkama þeirra.
Reynsla íslenska hópsins er hér túlkuð í tengslum við skúlptúrana á sýningunni, sem notaðir eru sem verkfæri til að mynda nýjan líkama sem mótast er af sameiginlegri fortíð.
Flytjendur verksins eru Axel Diego, Eyrún Ævarsdóttir og Harpa Lind Ingadóttir.
Gideonsson/Londré vilja koma á framfæri innilegasta þakklæti til þátttakenda í þessu verkefni.