Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Norræn bókmenntavika 2022

14.nóvember 2022 - 20.nóvember 2022

Norræn bókmenntavika er verkefni á vegum Sambands Norrænu félaganna sem leitast við að efla lestrargleði og breiða út norrænar bókmenntir á Norðurlöndunum og nágrannalöndum.

Norræna bókmenntavikan skiptist í tvo þætti: annars vegar Morgunstund – upplestur fyrir börn og hins vegar Rökkurstund – upplestur fyrir fullorðna. Undir Morgunstund fellur einnig nýr flokkur, sérstaklega ætlaður unglingum.

Skráðu skólann þinn, bókasafnið eða stofnunina og taktu þátt einum stærsta upplestrarviðburði Norðurlandanna! Þannig getum við í sameiningu skapað einstakan viðburð – þar sem norrænar bókmenntir lifna við og öðlast líf í skammdegisrökkrinu.

Hugmyndakverið

Á hverju ári gefur Norræna bókasafnavikan út sérstakt hugmyndakver. Þar getur að líta ýmsan fróðleik um þær bókmenntir sem valdar voru það árið, umfjöllun um þemað, og síðast en ekki síst lista yfir hugmyndir sem hægt væri að framkvæma í tengslum við bókasafnavikuna. Það eru t.a.m. tillögur að viðburðum sem mætti skipuleggja í vikunni, kennsluefni sem miðast við bækur og þema ársins og einnig listi yfir frekara lesefni og kvikmyndir til áhorfs.

Fáðu innblástur og hugmyndir að skapandi dagskrá – Hugmyndakverið 2022!

Details

Start:
14.nóvember 2022
End:
20.nóvember 2022
Event Categories:
, ,
Website:
https://www.nordisklitteratur.org/is