- This event has passed.
NORDAND 15
24.maí 2022 @ 09:00 - 26.maí 2022 @ 17:00
NORDAND 15
Háskóli Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Vigdísarstofnun standa saman að skipulagningu ráðstefnunnar Nordand 15 sem fram fer í Veröld – húsi Vigdísar 24.–26. maí 2022. Á ráðstefnunni verður bæði fjallað um norræn tungumál sem annað mál og erlent mál sem og fjöltyngi á Norðurlöndum.
Umfjöllunarefni:
- Tileinkun annars og erlends máls. Viðhorf og hugmyndafræði tungumála. Málstefna.
- Fræði, nám og orðræða tungumálakennslunnar.
- Fagmennska í kennaramenntun og fagleg þróun tungumálakennara: læsi, tungumál í námskrá, tungumálanám á vettvangi (utan skóla), tungumálanám í hagnýtum tilgangi.
- Fjölbreytileiki tungumála og menningar: tungumál í samskiptum og miðlun, öðrun (otherness), menningarkimar og tungumál, yfirfærsla (transfer) og tynging (translanguaging).
- Stafrænt vinnu- og námsumhverfi, tungumálanám með snjalltækjum.
- Sjálfstýrt nám – nemendastýrt nám; tækifæri og áskoranir.
- Samhliða notkun tveggja (eða fleiri) tungumála við ákveðnar aðstæður.
- Að ná tökum á talmáli – ferli og frálag